Hvers vegna dómareiknir?
Tilgangurinn með dómareikninum er að gera niðurstöðu dóma aðgengilega og skiljanlega almenningi. Oft virðist uppi misskilningur um hvernig niðurstaða dóma er í framkvæmd, enda ekki á hendi dómsvaldsins að útfæra dóma heldur framkvæmdavaldsins þ.e.a.s. fangelsismálastofnunar. Mörgum gæti þó þótt eðlilegra að það væri í verkahring dómstólana að útskýra og útfæra dóma, enda getur orkað tvímælis að það sé í höndum framkvæmdavaldsins að ákveða hverjir fá að afplána dóma í samfélagsþjónustu en ekki dómsvaldsins. Þá hefur ekki reynst mögulegt að setja inn í dómareikninn hvenær þeir sem afplána dóm í fangelsi eiga rétt á að afplána dóm sinn í svokölluðu opnu fangelsi þar sem skýr ákvæði skortir um slíkt. Dómareiknirinn getur þannig hugsanlega varpað ljósi á hvernig réttarkerfið virkar í raun, því útkoma dóma hefur að mörgu leyti verið hulin þeim sem ekki hafa djúpt innsæi inn í íslenskt réttarkerfi - sem er þó svo mikilvægt fyrir réttarríkið; að öllum sé kunnugt um hvaða reglur þar ríkja og þær séu öllum skiljanlegar, þar með talið dómaframkvæmd.
Aðstandendur dómareiknisins hafa í samvinnu við útvalda lögmenn og lögfræðinga á sviði sakamálaréttar, sem hafa góða innsýn og þekkingu á því efni sem hér er til umfjöllunar, sett saman þær upplýsingar sem er að finna á vefnum. Áfram verður unnið að því að þróa vefinn með það fyrir augum að auka þekkingu, og fræða almenning, um íslenskt réttarfar. Leitast verður eftir því að sú þróun verði í samvinnu við háskólasamfélagið, enda hlýtur það að vera gagnkvæmur hagur aðstandenda vefsins og fræðasamfélagsins að koma slíkum upplýsingum á framfæri við almenning. Þeir lögmenn sem hafa komið að því að aðstoða við uppbyggingu og innihald vefsins hafa sérþekkingu á sakamálarétti/refsirétti, auk þess sem reynt var að fá til samvinnu lögmenn með fjölbreytta reynslu og bakgrunn sem og frá sem flestum hornum landsins. Yfirlit yfir þá lögmenn sem aðstoðuðu við uppsetningu og þróun vefsins er að finna undir flipanum "lögmenn". Þó það sé einungis á færi dómstóla að kveða upp dóma flækir það oft niðurstöðurnar að fangelsismálastofnun skuli síðan falið að útfæra dómana og taka ákvarðanir um hvernig skuli fullnusta dóma. Því getur verið að niðurstöður dómareiknisins geti í einhverjum tilfellum stangast á við túlkun fangelsismálastofnunar um hvernig dómi skuli framfylgt. Uppsetning dómareiknisins er þó byggð á gildandi lögum, en aðstandendur vefsins bera þó ekki með neinum hætti ábyrgð á niðurstöðum þeirra útreikninga sem þar birtast. Tilgangurinn er þó að á vefnum séu alltaf sem réttastar upplýsingar og því eru þeir sem verða varir við misræmi á niðurstöðum sem hér birtast og framkvæmdinni í raun hvattir til að hafa samband: [email protected] Lögmenn sem hafa sérþekkingu á sakamálarétti og hafa áhuga á að vinna að uppbyggingu dómareiknisins er bent á netfangið: [email protected] |